Munkaþverárstræti 17, Akureyri
92.700.000,-
Verð:
Herbergi
7
Hæðir
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
Stærð
231
Gerð
Munkaþverárstræti 17, Akureyri
Lýsing eignar:
Nordik Fasteignasala kynnir eignina Munkaþverárstræti 17, 600 Akureyri.
Munkaþverárstræti 17 er 231.0 fm. einbýlishús á 2 hæðum á frábærum stað á brekkunni. Fasteign með mikla sál og mikil tækifæri. Á efri hæð er forstofa, 3 svefnherbergi, baðherbergi, sjónvarpsherbergi, eldhús/borðstofa og stofa. Á neðri hæð er þvottahús, herbergi með sturtu og saunaklefa, stórt vinnuherbergi þar sem gengið er út í garð og rúmgóður bílskúr. Lofthæð á neðri hæð er um 2 m. en meiri í bílskúr. Svalir snúa til suðurs og sólpallur er vestan við hús. Mikill og gróður sem gefur gott skjól.
Nánari lýsing:
Efri hæð:
Forstofa með flísum á gólfi. Þaðan gengið niður á neðri hæð.
Eldhús er með eldri eikarinnréttingu, flísar á borðplötum og milli efri- og neðri skápa.
Borðstofan er rúmgóð með parketi á gólfum.
Stofan er með flísum á gólfum, stórum gluggum auk einstaks arins.
Herbergin eru fjögur, tvö þeirra með fataskápum, eitt þeirra hefur verið opnað og er notað sem sjónvarpsherbergi í dag.
Baðherbergi er með baðkari, tveir vaskar, marmaraklædd borðplata. Stór gluggi og flísar á gólfi.
Neðri hæð:
Farið er frá forstofu niður steyptan stiga á neðri hæðina.
Þvottahús er með flísum á gólfi. Lítið kalt búr með hurð út í garð.
Herbergi þar er sturtuklefi og saunaklefi.
Herbergi/vinnuherbergi með hurð út í garð.
Bílskúr, mjög rúmgóður. Með bílskúrshurðaropnara.
Annað:
- Frábær staðsetning í göngufæri við miðbæinn.
- Garður er gróinn en bíður upp á mikla nýtingarmöguleika.
- Þak var yfirfarið sumarið 2024 og skipt um dúk.
- Eign sem hefur fengið gott viðhald alla tíð.
- Eignin er í einkasölu á Nordik Fasteignasölu.
Nánari upplýsingar veitir
Andres Már Magnússon lögmaður og lögg. fasteignasali, í síma 8522098, tölvupóstur nordik@nordikfasteignasala.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Nordik fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

























