top of page

Lækjarvellir 13-15, Grenivík

54.600.000,-

Verð:

Herbergi

4

Hæðir

1

Baðherbergi

1

Byggingarár

Stærð

96

Gerð

Lækjarvellir 13-15, Grenivík

Lýsing eignar:

Nordik fasteignasala kynnir fasteignina Lækjarvellir 13-15, 610 Grenivík:
Raðhúsaríbúðir á einni hæð á góðum stað á Grenivík. 

- Útborgun aðeins um 2.750.000,-, fyrir glænýja eign á besta stað á Grenivík ef sótt er um hlutdeildarlán frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.-

Um er að ræða 3-4 herbergja raðhúsaríbúðir á einni hæð. Endaíbúðir eru 98,5 fm. en hinar eru 96 fm. 

Val um að fá eignina afhenda (verð miðíbúð):
Tilbúið að utan; fullkláruð að utan, búið að einangra upp í loft og plasta, hiti kominn á. Verð kr. 43.900.000,-.
Fullklárað; fullkláruð að utan og innan, með heimilistækjum. Val eru um nokkra liti á innréttingum. Verð kr. 54.600.000,-.

Samkvæmt hönnun skiptist eignin í forstofu, tvö svefnherbergi, svefnherbergi/geymslu með glugga, þvottahús, baðherbergi með sturtu eða baði, stofa og eldhús í rúmgóðu alrými þar sem gengið er út á sólpall.

Nánari lýsing, afhending fullfrágengin að innan og utan:
Forstofa er flísa- eða parketlögð. Þaðan er gengið inn í þvottahús, herbergi/geymslu og inn í alrými.
Þvottahús er flísalagt, innrétting þar sem þvottavél og þurrkara er lyft upp í þægilega vinnuhæð.
Svefnherbergi/geymsla, með góðum glugga og fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi eru tvö, bæði með góðum fataskáp, parket á gólfi. Útgengt út á sólpall úr hjónaherbergi.
Baðherbergi, flísar á veggjum og gólfi, val um sturtu eða bað.
Eldhús og stofa, í einu alrými, aðskilin með eldhúseyju. Parket á gólfi. Val um hvort loft séu niðurtekin að hluta. Stórir gluggar. Gengið úr rýminu út á sólpall, tengi fyrir heitan pott.
Bílastæði fyrir 2 bíla að framan. Ruslaskýli fyrir þrjár 120L. ruslatunnur.

Aðrar upplýsingar:
- Seljandi þarf að greiða 0,3% skipulagsgjald af brunarbótamati, þegar það er lagt á.
- Eignin er í einkasölu hjá Nordik Fasteignasölu, Akureyri.

Að öðru leyti vísast til skilalýsingar fasteignar og hönnunargagna, sem fáanleg eru hjá fasteignasölu. Nánari upplýsingar veitir Andrés Már Magnússon, lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8522098, tölvupóstur andres@nordikfasteignasala.is.

​​​​​​Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

*Verið er að reisa fasteignina. Myndir í auglýsingu eru unnar út frá teikningum og grafískri hönnun. Þær eru því aðeins til viðmiðunar til að gefa hugmynd um endanlegt útlit eignar. 

Nordik Fasteignasala

Tölvupóstur

Sími

8522098

Hafðu samband ef þú hefur áhuga á þessarri eign:

bottom of page